Welcome to Ráðgjöf, fyrirlestar og vinnustofur
Ráðgjöf, fyrirlestrar og vinnustofur
Þjónusta í boði
Erla býður upp á fyrirlestra og ráðgjöf um heilsutengd málefni fyrir fyrirtæki, íþróttafélög, vinnustaði, saumaklúbba, samtök og aðra hópa.
Einkatími
Markmiðasetning- heilsan í fyrsta sæti- 15990kr
60 mínútna tími þar sem við setjum í sameiningu heilsutengd markmið, bæði skammtíma og langtíma markmið.
Ég býð upp á Heilsumarkþjálfun í Sjúkraþjálfuninni í Sporthúsinu á miðvikudögum. Hægt er að bóka tíma með því að hringja í 564-4067 eða senda tölvupóst á sjukrathjalfunin@sporthusid.is.
Vinnustofur
Skemmtilegur valkostur fyrir hópefli. Fræðsla, verkefni og umræður. Stuttur fyrirlestur og verkefnavinna þar sem gerð eru heilsutengd verkefni sem miða að því kenna þátttakendum hagnýta færni og hugmyndir til þess að bera ábyrgð á og bæta eigin heilsu.
Fyrirlestrar
Í boði eru fyrirlestrar um ýmis heilsutengd málefni á borð við svefn, hreyfingu, næringu, öndun, streitu, markmiðasetningu og margt fleira. Hægt er að óska eftir fyrirlestrum um ákveðið efni eða allan pakkann.
Ráðgjöf
Hægt er að óska eftir einstaklings- eða hópráðgjöf um heildræna heilsu, hvernig auka má lífsgæði með breyttum lífsstílsvenjum og hvernig á að setja sér raunhæf markmið að langvarandi árangri og bættri heilsu.
Umsagnir
Lestu reynslusögur á blogginu
Hafa samband
Hafið endilega samband til þess að fá tilboð í fyrirlestur eða vinnustofu. Einnig getum við hannað saman fyrirlestur eða námskeið sem hentar þér og þínum hóp eða fyrirtæki!
Fylltu út formið